Fréttir:
31.12.04
Sjötta Harry Potter bókin kemur í verslanir 16. júlí
á næsta ári. Verður nýja bókin, Harry
Potter and the half blood prins gefin út á sama tíma
í Bretlandi, Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu,
Nýja Sjálandi og Suður-Afríku. J.K. Rowling, höfundur
bókanna, sagði fyrr í dag að hún hefði
lokið við að skrifa bókina. Það var Bloomsbury
sem gefur bækurnar út í Bretlandi sem tilkynnti útgáfudaginn
fyrir stundu, en hlutabréf í fyrirtækinu hækkuðu
um 7% er þetta var tilkynnt.
Snæbjörn Arngrímsson hjá bókaútgáfunni
Bjarti segist búast við að bókin komi út á
íslensku í lok október eða byrjun nóvember.
Við stefnum á 30. eða 31. október, það
ætti nást að þýða hana fyrir þann
tíma. Það hefur að minnsta kosti tekist með fyrri
bækurnar, sagði Snæbjörn.
Ég þoli ekki þegar mbl kallar bókina Harry Potter og hálfi prinsinn!!!!!!Kunna þeir ekkert í ensku?????????
Prinsar eru venjulega heilir en ekki hálfir!!!
En annar GLEÐILEGT NÝTT ÁR!
28.07.04
Fimmtudaginn 8. júlí fékk
Rowling afhenta heiðursdoktorsgráðu frá háskólanum
í Edinborg. Hún sagði við þennan viðburð
að sér væri einstakur heiður að því
að fá hana. Að hljóta þennan heiður
frá borginni sem ég kalla núna heimaborg mína,
og að vera í svona virtum félagsskap, er mér mjög
mikils virði, sagði hún.
7.06.04.
Nú er búið að frumsína Harry Potter og fangan frá Azkaban ég fór á forsíninguna og mér fannst myndin góð.Samt vantaði nokkrar senur og þannig
7.06.04.
Villur í nýju kvikmyndinni
Harry Potter og fanginn frá Azkaban er varla komin á hvíta
tjaldið þegar fólk er komið með langan lista af
villum í myndinni. Mistökin varða aðallega tengingar
á senum, þ.e.a.s. að hlutir breytast frá einni töku
til annarrar. Hér eru nokkur sem hafa verið nefnd:
* Sena í skrifstofu Lupins. Kortið (Marauder's Map")
liggur á borði en er svo allt í einu horfið!
* Einn aðdáandi segir: Ég kom auga á mistök
nálægt upphafi myndarinnar. Örið á enninu á
Harry snýr fyrst til hægri, svo til vinstri, svo aftur til
hægri.
* Annar aðdáandi nefnir að þegar Hermione kýlir
Malfou, snúi hún sér við og slái hann í
einni hreyfingu. Þegar Harry og Hermione sjá þetta seinna,
er Hermione beint fyrir framan Malfoy og snýr að honum þegar
hún réttir út höndina og kýlir hann.
* CBBC talar um tímakeðjuna sem Hermione hefur um hálsinn.
Svo þegar hún vefur henni utan um sig og Harry er keðjan
allt í einu svo löng. Hefði keðjan verið svona löng
um hálsinn á henni, þá héngi hún
niður á gólf!
Fékk fréttina hér
11.05.04
Daniel Radcliffe, sem er þekktur fyrir hlutverk sitt sem Harry Potter í samnefndum kvikmyndum, neitar að horfa á fyrstu Harry Potter kvikmyndina. Ástæðan er sú að hann þolir ekki rödd sína í kvikmyndinni. "Ég hef ekki séð fyrstu kvikmyndina í nokkur ár því mér finnst röddin í mér alltof há," segir Racliffe, sem hefur nýlokið þátttöku í þriðju kvikmyndinni, Harry Potter og fanginn frá Azkaban.
"Mig langar ekki að horfa á fyrstu kvikmyndina... Reyndar
sá ég hluta af kvikmyndinni fyrir tilviljun í sjónvarpi
fyrir nokkru síðan og var ekki ánægður með
hlut minni í henni. Það var eins og ég hefði
gleypt helíum, sérlega undarlegt..."
Harry Potter og fanginn frá Azkaban verður tekin til sýningar
á Íslandi 4 júní næstkomandi
18.12.03
RUPERT GRINT á spjalli!
Rupert Grint, sem leikur Ron Weasley í kvikmyndunum, skellti sér á spjallið á síðu CBBC Newsround. Hann notaði nafnið Permlessboy(þýðingin einhvern veginn permanettlausistrákurinn), og voru margir sem trúðu ekki að þetta væri sá eini sanni Rupert. Þeir á Newsround síðunni tóku flest af því sem Rupert sagði og settu það á þessa síðu, og Lilja á Potter netinu þýddi það:
Permlessboy:
Það er æðislegt að vera kominn aftur, ég
er búinn að vera í frábæru viku fríi,
fyrir utan það að bróðir minn handleggs braut sig
og ég datt úr kajak og drukknaði næstum því(heppni
að áin var bara einn faðmur!!!). Kötturinn minn er óléttur
og lætur skriginlega, kanski útaf því að við
vorum að fá okkur hvolp sem heitir Sergeant Montgomery. Unicycling
mín er ekki oeðin betri og ég get ennþá
bara náð 4!!! En ég hef nú tekið upp á
því að jójóa, en ég hitti óvart
í handleggin á bróður mínum þegar
ég var að prófa nýa brellu!!! Þannig að,
ég er að fela mig hérna fyrir honum ef hann skildi lemja
mig í hausinn með gifsinu!!! Ég ætla að fá
mér skinku. -Rupert
Permlessboy
Bróðir minn datt niður þrep þegar að hann
var að hlaupa úr skólanum, og hann er í rosalega
vondu skapi vegna þess að hann getur ekki hjólað, spilað
rúbbí eða skautað, þannig að hann hefur
haft það rosalega vont seinni önnina! Hvolpurinn minn basset
hundur, jójóið mitt er túrbó hunangsfluga
og ég var að læra hvernig á að skipta atóm
bombunni og meiða brotna handleggi ha ha! ( veit þetta er skrítin
setning, en þetta er þýðingin! - Lilja) Ástarkveðja
Rupert
Cho_Chang_rox_my_world
Halló, Rupert! GUÐ MINN GÓÐUR!!! Þetta ert þú!
Ég trúi því ekki! Ekki móðgast útaf
nafninu mínu vegna þess að ég elska þig líka!
Hvaða ári ertu á? Ég er á 8. ári
Má ég spurja þig að spurningu? Veistu hver er að
leika Cho Chang í FFA myndinni (Fanginn Frá Azkaban) Útaf
því að ég vil leika hana! Og ertu byrjaður
að leika í myndinni? Plís svaraðu mér!!!!!
Elska þig rosa mikið! Ó já! SKINKA RÚLAR!
Permlessboy
Ég er á 10. ári, ég er á GCSEs . Ég
veit ekki hver leikur Cho Chang en ég er viss um að hún
verður Cho-heillandi ha ha!!!! Ég er á svona skeiði
vegna þess að ég held að kötturinn minn sé
að fara að eignast börn!
Permlessboy
Ég hef fengoð hundruð svara! Hjálp!!!!!!
*TOM ORLI M+P 4EVA*
VILJIÐ ÞIÐ ÖLL RÓA YKKUR NIÐUR mér
þykir það mjög leitt en viljið þið öll
vinsamlegast slaka á JÁ þetta er Rupert JÁ ég
er mjög ánægður/spenntur yfir því að
hann kemur og kemur aftur og JÁ hann er örugglega snortin yfir
öllum æpandi aðdáendunum en bara í eina mínútu
getið þið aðeins stoppað og andað inn og út
ókei ástarkveðja e.s ég vona að ég hafi
ekki móðgað ykkur plís ekki hata mig ókei
e.e.s skinka er ógeðsleg ostur rokkar, ok.
Permlessboy
Það er fýla af osti.
Rapchick
Ég er skíthrædd við snáka og einu sinni fann
mamma mín dauðann snák og þurfti endilega að
finna út hvaða tegund hann væri og guð, ég
hata þá. Ég veit ekki af hverju en ég verð
svimuð og sveitt þegar að ég sé þá.
Sé ykkur öll seinna. Ástarkveðja RaPchIc
Permlessboy
Þær(kóngulær) gera þetta líka við
mig, það er hræðilegt ekki satt!!!!
lil-talking-shortie101
Hey Rupert, er þetta virkilega þú?
Permlessboy
Já
Permlessboy
Gettu hver ?????
im_in_tha_house - 1st post
OMG(Oh my god, Guð minn góður)!!!!! Hæ!
Permlessboy
Hæ
ham_sandwich
Hey Rupert, hvernig gengur að gera myndina? Þetta er svooo skrítið
ég trúi því ekki að þú hafir
komið aftur. Ég heiti Olivia - myndirðu vilja vera netvinur
minn? lol ham_sandwitch he he
Permlessboy
Skinka rúlar !!! Ha ha!
sLyThErIn
Félagi þú ert æðislegur og allt það
en SKINKA? Meinarðu ekki egg?
Permlessboy
Egg lykta
super_silly_the_elf_and_luver_of_animals
Ertu ennþá grænmetisæta?
Permlessboy
Hvað þá?
pretty_pixie
Fyrirgegðu, en má ég segja að hann getur varla verið
grænmetisæta fyrst að hann elskar skinku! Mín uppáhalds
samloka er með hnetusmjöri! Haha - með osti og skinku! Ég
er með skrítinn smekk!
Permlessboy
Já þú hefur skrítinn smekk ha!
HP
Allt í lagi Rupert hvernig hefurðu það? Þú
hefur ekki verið hérna í margar aldir! Ég er nýr
hérna þannig að ég veit ekkert hvað er að
gerast en ég veit að þú hefur verið hérna
nokkrum sinnum. Ég verð að segja þér að
það eru allir hálfruglaðir hérna. Nú,
ég get eiginlega ekkert sagt því að ég er
ruglaðiasti krakkinn í skólanum mínum. Hvað
um það, vonandi ert þú í lagi, vonast til
þessa ð skrifa til þín bráðum aftur!
Permlessboy
Mér finnst mentalist(er ekki enskt orð, ruglaður eða
eitthvað álíkað) vera geðveikt orð!!!!
Ástarkveðja Rupert.
Surfer_Gurl
Gæti þetta virkilega verið Rupert?
Permlessboy
Já þetta er hann!
Feeling
OMG(Oh my god, Guð minn góður)!! Ert þú virkilega
RUPERT?? Vá! Það er rosalega rosalega rosalega spennandi!!!!
Mér finnst þú mjög góður leikari! Ég
ætla að reyna að komast á forsýninguna í
London! "Af hverju kóngulær? Af hverju gat það
ekki verið fylgið fiðrildunum?"
Permlessboy
Ég óska þess ennþá að það
hefðu verið fiðrildin... !!!!!! Ástarkveðja
Rupert
Snowy_Owl
Hey Rupert!!!! Ég trúi því ekki að þú
sért virkilega hérna aftur! Hvernig gengur myndin?
Permlessboy
Hæ snowy owl - myndin gengur vel!! Rupert
don't_mess_wiv_da_best
Allt í lagi, ef að þú ert Rupert þá
er ég J-Lo!
Permlessboy
Hæ J-lo. Ástarkveðja Rupert
Don't_mess_wiv_da_best
Þegar að Rupert er hérna, hvað kallar hann sig? Vegna
þess að ef að það er Permlessboy þá
er það vitlaust. Ég var á heimasíðunni
hans og þar stendur að nú kalli hann sig Permboy!!!
Permlessboy
Nei, ég er Permlessboy, ég á ekki vefsíðu
ennþá!!!! Ástarkveðja Rupert ( hver á
www.rupertgrint.co.uk? )
Af potternetinu .
27.11.03
Viðtal við "Crabbie"
Það er hægt að sjá viðtal við Jamie Waylett (Crabbie) það er hægt að lesa það hér ( á ensku)
í viðtalinu stendur:
Þegar Jamie Waylett kom heim úr skólanum einn daginn
og sagði Ég ætla að leika í Harry Potter
héldu hvorki mamma hans né fjölskylduvinurinn (nú
umboðsmaður), John Inniss, að hann hefði mikinn möguleika
á hlutverki. En Jamie hafði einu sinni haft betur í baráttunni
við örlögin - og það svo meistaralega að hinir
fullorðnu hefðu mátt vita á hverju þau áttu
von.
Þegar Jamie var 9 ára lenti hann undir bíl og var ekki
hugað líf. Læknarnir sögðu að þótt
hann lifði af hefði hann sennilega hlotið of mikinn heilaskaða
til að geta lifað eðlilegu lífi. Þegar móður
hans var sagt að drengurinn hefði lent í slysi var henni
eingöngu tilkynnt að hann væri fótbrotinn á
báðum fótum.
Ég keyrði upp á spítala og hugsaði, sá
fær að heyra það, segir hún og sýnir
handahreyfingar eins og hún ætli að kyrkja einhvern. Ég
ætlaði að ganga frá honum. Vegna þess að
ég var bara að hugsa um fótbrot. Mér kom ekki til
hugar, þið vitið . . . Hún hristir höfuðið.
Þegar Teresa Waylett kom á spítalann kom hún
að syni sínum meðvitundarlausum. Jamie var á gjörgæslu
í þrjá daga og á þeim tíma settu
læknarnir nagla í fótleggi hans en það tíðkast
ekki á Englandi. . .
Lestu endilega meira af þessu viðtali á ensku og sjáðu
hvernig strákurinn náði að tala og ganga aftur, ótrúlegt.
Og þegar leitað var eftir leikurum í skólanum hans,
kom hann fyrst til greina sem Dudley Dursley og síðan var ákveðið
að hann fengi hlutverk Crabbe. Nú er hann svo þekktur um
allt Skotland að hann er stöðvaður á götu og
beðið um eiginhandaráritanir.
14.11.03
Það er hægt að sjá kynningarmyndband á Fanganum frá Azkaban hér.
Þar er meðalannars hægt að sjá Marge frænku ,Riddaravagninn ,Sirius í klefanum ,vitsuguhönd og margt fleira
13.11.03
Metsala á Harry Potter:
Líf lesenda í uppnámix(2003-11-05)Salan á fimmtu Harry Potter bókinni, Harry Potter og Fönixreglan, hefur farið fram úr björtustu vonum þessa fyrstu söluviku. Bókin seldist mjög vel í forsölu og hefur síðan selst jafnt og þétt í bókabúðum frá því á laugardag. Hún er langsöluhæsta bókin í bókabúðum Pennans-Eymundsson og Máls og menningar, hefur selst "nálægt því tíu sinnum meira en næsta bók á eftir," að sögn Bryndísar Loftsdóttur Pennanum-Eymundsson.
Bryndís sagði skýringuna á því að
Harry Potter og Fönixrelgan væri ekki efst á aðalsölulistum
verslanna þá að barnabækur væru ekki teknar
með í þeim lista, heldur aðeins væri þetta
aðeins aðallisti fyrir fullorðinsbækur. Bjarti þykir
þess vegna ástæða til að vekja athygli á
því að salan á Harry Potter fer vel af stað,
enda virðast lesendur á öllum aldri sammála um að
þessi fimmta bók uppfylli fyllilega þær miklu væntingar
sem til hennar eru gerðar.
Í fjölmiðlapistli í Fréttablaðinu í
dag sagði Kolbrún Bergþórsdóttir meðal
annars: "Ég hef engan tíma til að sitja við tækið
og fylgjast með ómerkilegum raunveruleika. Ég er á
blaðsíðu 620 í nýju Harry Potter bókinni
og líf mitt er í uppnámi. Hvernig geta tíu ára
börn lifað eðlilegu lífi meðan þau lesa þessa
bók? Ég er fullorðin, og að því er ég
hélt þroskuð manneskja, en þessa dagana er ég
skelfingu lostin vegna alls kyns hörmunga sem Harry Potter og vinir
verða að þola. Eins gott að allt fari vel að lokum,
svo maður nái andlegu jafnvægi."
8.10.2003
Loksins er Harry Potter og Fönixreglan farin í prentun. Það
eru norskir prentarar sem sérhæfa sig um þessar mundir
í að prenta Harry Potter fyrir heiminn sem sjá um prentun
bókarinnar. Rotanor heitir prentsmiðjan og hefur áður
prentað fjölmargar bækur fyrir íslenskan markað.
Fyrsta upplag bókarinnar er án efa það stærsta sem
þekkist í íslenskum bókabransa 15000 eintök
koma siglandi til landsins í lok október og það
er enginn smá farmur. Bókin er 750 blaðsíður
og þykkari en símaskráin.
Bókin kemur til landsins þann 27. október en sala hefst
í bókabúðum þann 1. nóvember kl.:11:11.
Þeir sem kaupa bókina í forsölu Íslandsbanka
og Eymundsson fá bókina afhenta janskjótt og hún
er afgreidd úr tolli.
12 okt
Íslandsbanki hefur verið sérlega áhugasamur um
framgang Harrys Potter á Íslandi. Tengist áhuginn átaki
Íslandsbankamanna sem kallast: "Lestur er líkamsrækt
hugans". Undanfarnar vikur hafa forritarar bankans dundað
sér við það að gera hraðbanka hæfa til
að afgreiða Harry
Potter og Fönixregluna. Ísland mun vera eina landið í
heiminum þar sem menn hafa látið sér detta í
hug að selja
bækur í gegnum hraðbanka.Þess má geta að
nú er þýðingu Harrys Potter og
Fönixreglunnar lokið og fer bókin, sem verður 730
blaðsíður, í prentun þann 2. október.
Það eru norskir
prentarar sem fá þann heiður að prenta dýrgripinn.
9. ágúst 2003:
Fimmta bókin um Harry Potter verður gefin út á
blindraletri í Bandaríkjunum á næstunni, en hún
verður 1.600 blaðsíður. Það þarf sterkt
bak til að bera hana því hún verður í
13 bindum og vegur um fjögur kílógrömm, að því
er fram kemur á New England Cable News. Þá er verið
að leggja síðustu hönd á hljóðupptökur
af Harry Potter og Fönixreglunni" eins og nýja bókin
heitir.
af www.mbl.is/